Vetrarleyfi 20. og 21. feb. 2017
Eins og kemur fram á skóladagatali Rimaskóla skólaárið 2016-2017 verður vetrarleyfi í grunnskólum Reykjavíkur dagana 20. og 21. febrúar.
Öll kennsla fellur niður þessa tvo daga. Þess er vænst að foreldrar og nemendur kunni vel að meta þessa hvíld frá skólastarfi og njóti vetrarleyfisins.
Kennsla hefst að nýju eftir vetrarleyfi miðvikudaginn 22. febrúar skv. stundaskrá
Skólastjóri