Kæru foreldrar . Hvetjið börnin ykkar til að vera með á TORG skákmótinu í Rimaskóla
Skákdeild Fjölnis býður öllum skákáhugamönnum á grunnskólaaldri að taka þátt í hinu árlega TORG-skákmóti sem hefst í Rimaskóla laugardaginn 26. nóvember kl. 11:00. Mótinu lýkur með happadrætti og mikilli verðlaunahátíð kl. 13:15. Mikið um dýrðir á þessu vinsæla skákmóti fjöldi vinninga og ókeypis ís í boði Emmess í skákhléi.
Heiðursgestur mótsins verður enginn annar en hinn vinsæli rithöfundur, leikari, sjónvarpsstjarna og vísindamaður Ævar Þór og verða árituð eintök af nýjustu bókinni hans á meðal þeirra vinninga sem keppt er um. Aðrir vinningar eru pítsur frá Pizzunni, íspakkar frá Emmess og gjafabréf frá fyrirtækjum á Torginu í Hverafold í GrafarvogiTefldar verða 6 umferðir og umhugsunartíminn er 7 mínútur. Skákstjórar verða Björn Ívar Karlsson frá Skákakademíu Reykjavíkur og Helgi Árnason formaður skákdeildar Fjölnis.
Áhugasamir skákkrakkar eru hvattir til að taka félaga sína, vini og systkini með sér á mótið, alla sem kunna að tefla.
Heitt á könnunni og notaleg sæti fyrir foreldra í Rimaskóla.