FIRST LEGO League keppnin – Skráning er hafin!
Á fimmtudaginn 30. mars, hófst skráning í FIRST LEGO League (FLL) keppnina sem haldin verður laugardaginn 11. nóvember 2017. Markmiðið er að vekja áhuga ungs fólks á vísindum og tækni, sem og að efla sjálfstraust, leiðtogahæfni og lífsleikni. Síðast tóku um 180 nemendur þátt, alls staðar að á landinu.
Einungis 24 lið geta skráð sig til keppni – því er best að tryggja sér pláss strax.
Skráningarfrestur rennur út 20. maí nk. Síðast gátu færri tekið þátt en vildu og við minnum á að fyrstur kemur, fyrstur fær.
Út á hvað gengur keppnin?
Keppendur eru á aldrinum 10-16 ára. Í hverju liði eru hámark 10 börn og a.m.k. einn fullorðinn leiðbeinandi. Athugið að leiðbeinendur geta verið foreldrar og/eða starfsfólk skólans. Öll lið fá senda þrautabraut í upphafi skólaárs til að undirbúa sig þar sem unnið er með nýtt viðfangsefni á hverju ári. Laugardaginn 11. nóvember 2017 hittast keppnisliðin í Háskólabíói og keppa sín á milli í þraut ársins.
Í undirbúningi keppninnar læra nemendur að beita stærðfræði og vísindum til að leysa raunveruleg verkefni og temja sér öguð vinnubrögð við öflun heimilda, úrvinnslu gagna og skýrslugerð. Einnig læra nemendur að vinna sem liðsheild og að kynna verkefni fyrir áhorfendum. Ekki má gleyma því að félagsskapurinn og skemmtunin sem felst í því að leysa verkefni í hóp er veganesti fyrir lífið. Að þessu leyti eru allir þátttakendur keppninnar sigurvegarar.
Nauðsynlegur útbúnaður vegna keppninnar er Mindstorms Educationssett og tilheyrandi hugbúnaður (fæst hjá Krumma).
Þátttökukostnaður
Þátttökukostnaður er 45.000 kr. á lið sem skiptist þannig: þraut ársins 20.000 kr. og keppnisgjald 25.000 kr. Lið sem taka þátt í keppninni í fyrsta skipti eru undanþegin keppnisgjaldi. Þau lið geta einnig fengið eldri útgáfu af þrautabrautinni til æfingar að kostnaðarlausu, meðan birgðir endast. Gjaldið fyrir þraut ársins fæst ekki endurgreitt. Keppnisgjaldið fæst endurgreitt ef lið dregur sig úr keppni fyrir 1. október 2017.
Háskóli Íslands sér um framkvæmd keppninnar
Nánari upplýsingar veita Ingunn Eyþórsdóttir (ingunney@hi.is) og Guðrún Bachmann (gudrunba@hi.is).
Með góðri kveðju,
Fyrir hönd LEGO teymis Háskóla Íslands,
Ingunn Eyþórsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri
Menntavísindasvið HÍ
ingunney@hi.is
Sími: 525 5961
Guðrún Bachmann
Kynningarstjóri
Markaðs- og samskiptasvið HÍ
gudrunba@hi.is
Sími: 525 4234