Aðalfundur foreldrafélags Rimaskóla í hátíðarsal skólans í kvöld kl. 19:30
Aðalfundur foreldrafélags Rimaskóla verður haldinn í kvöld, fimmtudagskvöldið 9. október, í Hátíðarsal Rimaskóla og hefst hann kl. 19.30
Dagskrá
. Skýrsla stjórnar
. Ársreikningar félagsins lagðir fram
. Kynning á skólaráði og kosning fulltrúa foreldra í ráðið
. Kosning í stjórn foreldrafélagsins
. Gjöld foreldrafélagsins
. Foreldrarölt
. Skólalóð Rimaskóla
. Önnur mál
Stjórn foreldrafélagsins starfar í umboði foreldra og þarf að fá hugmyndir og skoðanir frá foreldrum.
Aðalfundurinn er kjörinn vettvangur til að koma þeim á framfæri.
Hvetjum alla til að mæta á fundinn og fá nánari upplýsingar um starfssemi foreldrafélagsins, spjalla saman og koma á framfæri þeim verkefnum sem þið viljið sjá framkvæmd í félaginu
Hlökkum til að sjá þig á aðalfundi!
Stjórn foreldrafélags Rimaskóla