Rimaskóli sigraði í öllum árgöngum á Grunnskólamótinu í frjálsum 2016

grunnskolamotidNemendur í 6. – 9. bekk Rimaskóla komu sáu og sigruðu í öllum þeim fjórum árgöngum sem keppt var í á Grunnskólamótinu í frjálsum 2016. Mótið var haldið í Laugardalshöll fyrstu daga septembermánaðar.

Sjötíu Rimaskólakrakkar fjölmenntu í Höllina og sigruðu örugglega í öllum árgöngum. Af þeim 16 greinum sem keppt var í hrepptu nemendur Rimaskóla 8 gullverðlaun, 4 silfurverðlaun og 5 bronsverðlaun.

Mikil verðlaunahátíð var haldin í sal Rimaskóla þegar ólympíufararnir Aníta Hinriksdóttir og Guðni Valur Guðnason mættu í skólann með glæsilega verðlaunagripi og afhentu afrekskrökkunum verðlaunin og óskuðu þeim til hamingju með einstakan árangur.

Það er Frjálsíþróttaráð Reykjavíkur sem sér um framkvæmd mótsins í samstarfi við frjálsíþróttadeildir Ármanns, Fjölnis og ÍR.

SKILDU EFTIR SKILABOÐ

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.