Öll börn eru skólaskyld á því ári sem þau ná 6 ára aldri og hafa forgang að sínum hverfisskóla en foreldrar geta einnig sótt um skólavist í öðrum hverfisskóla eða í sjálfstætt starfandi skóla fyrir barnið. Skólaárið 2014-2015 hefst 22. ágúst. Innritun fer fram í gegnum Rafræna Reykjavík.
Skólinn gegnir afar mikilvægu félagslegu hlutverki fyrir öll börn. Langflestir foreldrar kjósa hverfisskólann, þannig aukast líkur á því að barnið eignist vini og kunningja í nærsamfélaginu og auk þess er styttra fyrir barnið að sækja skóla. Afar mikilvægt er að barnið finni að foreldrar beri traust til skólans og séu í góðum samskiptum við kennara og skólastjórnendur.
Foreldrar eiga, samkvæmt 18. gr. laga um grunnskóla nr. 91/ 2008, rétt á að velja annan skóla í sveitarfélaginu fyrir börn sín. Telji þeir það þjóna betur hagsmunum barnsins að sækja skóla utan hverfis senda þeir umsókn til þess skóla. Skólinn tekur inn nemendur nema plássleysi hamli.
Grunnskólar Rekjavíkur verða haustið 2014 settir þann 22. ágúst.