Mat á skóla- og frístundastarfi
Mikilvægur þáttur í að tryggja gæðastarf í skóla- og frístundastarfi er reglulegt mat á fagstarfinu. Í mati felst að upplýsinga er aflað með margvíslegum hætti og út frá þeim er dregin ályktun um gæði starfseminnar. Þessar upplýsingarnar eru notaðar til umbóta og til að stuðla að betra skóla- og frístundastarfi.
Ytra mat
Ytra mat skóla- og frístundasviðs hefur það að markmiði að fylgjast með og stuðla að auknum gæðum og árangri hjá þeim stofnunum sem heyra undir sviðið. Til grundvallar ytra matinu liggja fyrirfram skilgreind viðmið um gæði í leikskóla-, grunnskóla- og frístundastarfi. Starfsemin er metin með könnunum, vettvangsheimsóknum, greiningu gagna og viðtölum við stjórnendur, starfsfólk, börn og foreldra.
• Heildarmat var gert á öllum grunnskólum í Reykjavík frá 2007 til 2013. Meginþættir í heildarmatinu voru skólastarf, verklag, mannauður og fjármál. Í lok árs 2013 höfðu allir grunnskólar í Reykjavík verið metnir einu sinni og nokkrir tvisvar.
• Annar matshringur ytra mats á grunnskólum hófst haustið 2014. Meginþættir í matinu eru stjórnun, nám og kennsla og innra mat. Einnig er metinn mannauður, skólabragur og skóli án aðgreiningar.
• Ytra mat á leikskólum hófst vorið 2013. Meginþættir í matinu eru stjórnun, uppeldi og kennsla, mannauður, skólabragur og innra mat.
• Ytra mat á frístundastarfi hófst haustið 2014. Meginþættir í matinu eru stjórnun, frístundastarf, mannauður, staðarbragur og innra mat.
Mat á leikskólastarfi.
Innra mat
Eitt af verkefnum skóla- og frístundasviðs er að styðja við innra mat í skóla- og frístundastarfi, m.a. með því að hafa aðgengileg gögn sem nýtast við innra mat, s.s. viðmið um gæði, matsblöð, gátlista og leiðbeiningar um mat og matsaðferðir.
Upplýsingar um undirbúning, framkvæmd og hugmyndafræði heildarmats í grunnskólum Reykjavíkur má finna í grein í veftímaritinu Netlu.