Kynning á niðurstöðum Ungt fólk 2016 Kynning á niðurstöðum Ungt fólk 2016 í Rimaskóla

thMánudaginn 10. október kl. 16:00  verður haldin kynning á skýrslunni sem Rannsóknir og Greining gerði þar sem greint er frá niðurstöðum úr Ungt Fólk rannsókninni árið 2016.  Kynningin fer fram í Rimaskóla og verður áhersla lögð á svörunina sem barst í Grafarvogi og á Kjalarnesi.

Vímuefnaneysla unglinga er skoðuð yfir tíma og ítarlega skipt niður eftir flokkum og þá eru umfangsmiklar niðurstöður er varða lýðheilsu ungmenna settar fram. Greindir eru þættir sem hafa áhrif á líkur á áhættuhegðun og vímuefnaneyslu, svo sem samband við foreldra, eftirlit og útivistartími, viðhorf til náms, líðan í skóla og þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi og tómstundastarfi. Einnig er greint frá niðurstöðum um tölvunotkun og neteinelti meðal nemenda. 

Allir starfsmenn grunnskólanna í Grafarvogi og á Kjalarnesi eru boðnir velkomnir ásamt starfsfólki félagsmiðstöðvanna í hverfunum. Auk þess viljum við bjóða foreldra velkomna og vonumst við til þess að sem flestir komi á þennan spennandi viðburð. 

Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknum og Greiningu ætlar að kynna helstu niðurstöður skýrslunnar og ræða áhættuþætti í nærumhverfi unglinga í dag. 

Við vonumst til að sjá sem flesta. 

kveðja,

Þorvaldur Guðjónsson

Verkefnastjóri frístunda og félagsauðs

valdi@reykjavik.is

 

UM HÖFUNDINN

SKILDU EFTIR SKILABOÐ

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.