Aðalfundur foreldrafélags Rimaskóla verður haldinn þriðjudagskvöldið og hefst hann kl. 19.30
Aðalfundur foreldrafélags Rimaskóla
Aðalfundur foreldrafélags Rimaskóla verður haldinn þriðjudagskvöldið
25. október n.k., í Hátíðarsal Rimaskóla og hefst hann kl. 19.30
Dagskrá
Skýrsla stjórnar
Ársreikningar félagsins lagðir fram
Kynning á skólaráði og kosning varafulltrúa foreldra í ráðið
Kosning í stjórn foreldrafélagsins
Önnur mál
Stjórn foreldrafélagsins starfar í umboði foreldra og þarf að fá hugmyndir og skoðanir frá foreldrum til að geta sinnt sínu hlutverki sem best.
Aðalfundurinn er kjörinn vettvangur til að koma þeim á framfæri og taka þátt í að móta stefnu og verkefni félagsins á komandi vetri.
Hvetjum alla til að mæta á fundinn og fá nánari upplýsingar um starfssemi foreldrafélagsins, spjalla saman og koma á framfæri þeim verkefnum sem þið viljið sjá framkvæmd í félaginu
Hlökkum til að sjá þig á aðalfundi!
Stjórn foreldrafélags Rimaskóla
Rimaskóli
Stjórn foreldrafélags