Aðalfundur foreldrafélags Rimaskóla

Aðalfundur Foreldrafélags Rimaskóla verður haldinn miðvikudagskvöldið 11. október n.k., í fjölnýtisrými Rimaskóla og hefst hann kl. 19.30

Dagskrá:
– Skýrsla stjórnar
– Ársreikningar félagsins lagðir fram
– Valgreiðsla foreldrafélagsins
– Foreldrarölt
– Bekkjarfulltrúar
– Skólalóð Rimaskóla
– Önnur mál

Stjórn Foreldrafélagsins starfar í umboði foreldra og þarf að fá hugmyndir og skoðanir frá foreldrum.
Aðalfundurinn er kjörinn vettvangur til að koma þeim á framfæri.

Hvetjum alla til að mæta á fundinn og fá nánari upplýsingar um starfssemi foreldrafélagsins, spjalla saman og koma á framfæri þeim verkefnum sem þið viljið sjá framkvæmd í félaginu.

Hlökkum til að sjá þig á aðalfundi!

Stjórn Foreldrafélags Rimaskóla

SKILDU EFTIR SKILABOÐ

*

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.